Bygg
Bygg

Fréttir

Viðræður um sameiningu settar á bið
Föstudagur 13. desember 2024 kl. 06:08

Viðræður um sameiningu settar á bið

Verkefnisstjórn um óformlegar viðræður um sameiningu sveitarfélaganna Voga, Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar leggur til við sveitarstjórnirnar að beðið verði með ákvörðun um viðræður um sameiningu sveitarfélaganna þar til fyrir liggur lágmarks yfirlýsing um að stjórnvöld muni koma til móts við sveitarfélögin varðandi þær forsendur sem þurfa að liggja fyrir áður en til afgreiðslu kemur í bæjarstjórnunum.

Sameiningarmálin voru tekin fyrir í bæjarráði Suðurnesjabæjar á síðasta fundi. Í erindi verkefnastjórnarinnar er gerð grein fyrir vinnu verkefnisstjórnar og þeim forsendum sem hún telur þurfa að liggja fyrir áður en bæjarstjórnir sveitarfélaganna taka ákvörðun um framhald málsins.

Bæjarráð Suðurnesjabæjar samþykkir samhljóða að beðið verði með ákvörðun um viðræður um sameiningu sveitarfélaganna.

Bílakjarninn
Bílakjarninn