Bygg
Bygg

Fréttir

Viðræður hafnar við Samfylkingu og Lista Grindvíkinga
Fimmtudagur 16. ágúst 2012 kl. 09:54

Viðræður hafnar við Samfylkingu og Lista Grindvíkinga

Nýr meirihluti líklega myndaður fyrir næsta bæjarstjórnarfund.

„Samstarfið hefur verið stirt að undanförnu. Meirihluti og minnihluti bæjarstjórnar hafa að því er virðist ólíka sýn á bæði málefni og hvernig vinnubrögðum skal háttað,“ segir Bryndís Gunnlaugsdóttir forseti bæjarstjórnar í Grindavík í samtali við Víkurfréttir nú rétt í þessu. En eins og greint hefur verið frá í fréttum var meirihlutasamstarfi Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks í Grindavík slitið í gærkvöldi.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Hún segir það alltaf vera erfitt að slíta samstarfi meirihluta og að það valdi alltaf óróa meðal bæjarbúa. Hún segir að bæjarbúar þurfi þó ekki að hafa áhyggjur af aukakostnaði vegna þessa en eins og flestir vita var Róbert Ragnarsson bæjarstjóri ráðinn ópólitískt og gerir Bryndís ráð fyrir að hann muni sitja áfram. „Íbúar Grindavíkur þurfa ekki að hafa áhyggjur að kostnaði vegna þessara meirihlutaslita,“ sagði Bryndís.

Meirihlutaviðræður eru þegar hafnar að sögn Bryndísar og eru framsóknarmenn nú í viðræðum bæði við Samfylkinguna og lista Grindvíkinga. Bryndís segir að líklega verði búið að stofna nýjan meirihluta fyrir næsta bæjarstjórnarfund sem haldinn verður í næstu viku.

Bryndís segir að þessi niðurstaða hafi í raun ekki komið neinum á óvart þar sem mikið hefði gengið á í bæjarmálum að undanförnu og hefur félagsheimilið Festi verið mikið í umræðunni, Bryndís segir það eiga stórann þátt í slitunum. „Sjálfstæðismönnum fannst líka að við í Framsókn værum í of miklum tengslum við minnihlutann en við teljum að það samstarf hafi verið með fullkomlega eðlilegum hætti,“ sagði Bryndís að lokum.