Viðhorfskönnun meðal íbúa í Reykjanesbæ
Reykjanesbær og Lögreglan í Keflavík hafa sent út viðhorfskönnun til allra heimila í Reykjanesbæ þar sem kannað er viðhorf íbúa varðandi ýmsa þjónustu sem veitt er af þessum aðilum. Könnuninni er ætlað að bæta þjónustu við íbúa og er áætlað að gera sambærilegar kannanir með reglulegu millibili til að leggja mat á viðhorf íbúa til þeirrar þjónustu sem veitt er. Að auki býðst nú íbúum að skrá sig í Netsveit Reykjanesbæjar en þar er hægt að velja þátttöku í rafrænum skoðanakönnunum á vefsíðu bæjarins eftir mismunandi áhugasviði.
Bæjarbúar eru hvattir til þess að svara könnuninni rafrænt en henni fylgir vefslóð og lykilorð. Þeir sem svara rafrænt hafa möguleika á að skrá sig í happdrætti. Meðal vinninga eru gisting í orlofshúsum Starfsmannafélags Suðurnesja, árskort í sund og fleira er tengist þjónustu Reykjanesbæjar. Dregið verður úr nöfnum þeirra sem svöruðu rafrænt að könnun lokinni 6. maí n.k.
Einnig er hægt að skila könnuninni á eftirtaldar stofnanir Reykjanesbæjar:
Bæjarskrifstofur Tjarnargötu 12 og í Kjarna Hafnargötu 57
Bókasafn, Kjarna Hafnargötu 57
Lögreglustöð Hringbraut 130
Sundmiðstöðin við Sunnubraut
Íþróttamiðstöð Njarðvíkur
leik- og grunnskólar
Könnunin er unnin í vefkannanaforritinu Outcome sem tryggir að öll svör séu órekjanleg og að í öllu sé farið eftir reglum Persónuverndar.
Frekari upplýsingar um könnunina veita Dagný Gísladóttir 862 2208 og Hjördís Árnadóttir 421 6700. Einnig er hægt að senda póst á netfangið: [email protected]