Víðförull bæjarstjóri í janúar
Heldur fjölda funda og endar á opnum íbúafundi.
	Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, hyggst nota janúarmánuð m.a. í að veita starfsmönnum upplýsingar um stöðu mála hjá Reykjanesbæ. Hann mun heimsækja allar stofnanir og gefa starfsmönnum Reykjanesbæjar kost á að spyrja eða ræða þau mál sem á þeim hvíla. Einnig mun hann verða gestur ýmissa félaga og klúbba í sama tilgangi.
	Að lokum mun bæjarstjóri halda opinn íbúafund í sal Hljómahallar; Bergi, miðvikudaginn 28. janúar kl. 20:00 þar sem hann mun kynna nýsamþykkta fjárhagsáætlun 2015 og gefa bæjarbúum kost á að spyrja um hvað eina sem þeim liggur á hjarta. 


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				