Video: Viðtal við Árna Sigfússon
Hvernig hefur ykkur sjálfstæðismönnum fundist þessar síðustu vikur í kosningabaráttu?
Þær hafa verið jafnskemmtilegar og síðustu fjögur ár. Þetta er búinn að vera mikill uppbyggingartími og mikið fjör í kringum þetta allt saman hjá okkur og það hefur ekkert breyst þessar síðustu vikur.
Nú hafði þið verið að mælast vel í skoðanakönnunum. Slær það ekkert á keppnisskapið í ykkur?
Ekki þegar maður er búinn að vinna í fjögur ár og sér uppskeruna. Ég er sáttur við að bæjarbúar taki svona vel í það sem við höfum verið að vinna. Það þýðir ekki að koma tíu mínútum fyrir kosningar og vonast eftir svona tölum. Þetta er afrakstur síðustu ára og ég minni á að þetta eru bara skoðanakannanir. Ég hef ekki séð þessar tölur koma upp úr kössunum og geri ekki ráð fyrir að þær verði í þessum dúr, en það væri gríðarlega ánægjulegt ef að við fengjum sterkan meirihluta.
Nú er stutt í kosningar. Eru einhver sérstök mál sem þið setjið á oddinn á lokasprettinum?
Nú höfum við lagt fram okkar mál og ég vona að bæjarbúar hafi skynjað þau og veiti okkur stuðning þeirra vegna. Mér finnst hins vegar ánægjulegt að það skuli enn vera að koma fram afrakstur vinnu sem við höfum verið að vinna með góðu starfsfólki. Það er gaman að vera með starfsfólki sem hefur mikla þekkingu og maður þarf lítið að gera annað en að hvetja þau áfram. Ég sé það á þeim upplýsingum sem við erum að fá frá Barna- og unglingageðdeild þar sem er að fækka innlögnum hér í Reykjanesbæ og hlutfallið er mun lægra en á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er að þakka góðri forvarnarvinnu hér í bænum. Svo erum við að fá góða útkomu í lestrarverkefnum sem þýðir að við erum að auka fjölda barna sem geta lesið sér til gagns um 10% sem er mjög góður árangur. Þetta finnst mér vera besti árangurinn sem mér finnst vænst um.
Aðalandstæðingar ykkar í A-listanum hafa sett fram áætlanir um að kaupa aftur eignir bæjarins og ætla að skapa með því 180 milljónir í aukið fjármagn á ári. Hverju svarið þið því?
Ef þessir peningar liggja á lausu skulum við bara gera þetta. Þetta er hins vegar ekki svona. Þetta er eiginlega algjör steypa og ég held að þeir viti það í A-listanum. Þetta er bara eitthvað upphlaup rétt fyrir kosningar. Þetta fyrirkomulag var samþykkt 10-0 í bæjarstjórn, þar á meðal af fulltrúum sem nú eru í A-listanum, þar er líka þáverandi fjármálastjóri bæjarins sem taldi þetta allt gott og gilt. Það hefur ekkert breyst í þessu máli síðan þá nema að það leit út fyrir að meirihlutaeign í þessu félagi væri í höndum fjármálafyrirtækja. Það hefur breyst og nú meirihlutaeign í höndum sveitarfélaga sem hlýtur að vera kostur fyrir sveitarfélög og allir sveitarstjórnarmenn ættu að fagna því. Það eina sem hefur breyst er til betri vegar og við erum líka að sjá verulegt hagræði í byggingarkostnaði. Við erum þar að sjá tölur sem nema hundruðum milljóna bara á nokkrum árum sem skila sér því þetta er félag sem hefur sérþekkingu og getu sem er að ná miklum árangri.
Sérðu fram á áframhaldandi uppbyggingu hér í bænum?
Já, það er ekkert sem bendir til annars. Það er einmitt mjög ánægjulegt að sjá verslanir og þjónustufyrirtæki sem eru að koma hingað inn á fullri ferð. Ég nefni sem dæmi Smáratorg með Rúmfatalagerinn sem er að byggja fyrir 23.000 fermetra húsnæði með smáverslanir og stórverslanir. Ég nefni Hagkaup sem er að koma hér inn við hliðina á Bónus vegna þess að það er mikil gróska hér í okkar bæjarfélagi. Ég nefni Atafl, fyrrum Keflavíkurverktaka sem eru að byggja upp við Go-kart afleggjarann. Ég nefni KB banka sem er að koma hér inn. Þetta er fjöldi fyrirtækja sem er að koma hér inn og þetta hvetur hvað annað svo ég hef mikla trú á því að við seum á fljúgandi ferð. Við sjáum það síðustu tvö árin að hér er hlutfallslega mest fjölgun af fimm stærstu sveitarfélögunum. Ég hélt að það væri Kópavogur sem væri með mesta fjölgun eins og er umtalað, en við sjáum að það er Reykjanesbær sem að ber af. Þetta er ánægjulegt og ég hef ekki trú á öðru en að þetta muni þróast svona áfram. Við erum að fá á okkur stórt verkefni sem er Varnaliðið, en mér sýnist við geta svarað því með margþættum aðgerðum í atvinnumálum.
Atvinnuástandið og blikur í lofti í efnahagsmálum landsins skekja ykkur þá ekki?
Það eru frekar efnahagsmál landsins en það sem er að gerast hér á svæðinu sem hefur áhrif en við skulum standa okkur, við keyrum áfram og gerum það skynsamleg. Ég trúi því að við munum sigla vel framúr þessu.
Er eitthvað að lokum sem þú vilt koma á framfæri?
Ég vil bara minna bæjarbúa á það sem við höfum verið að vinna og höfum fjallað um þessar síðustu vikur og daga fyrir kosningar. Það er afrakstur þess sem við höfum verið að vinna þessi fjögur ár. Ég hef haft gríðarlega gaman af því að vinna með bæjarbúum á íbúafundum og notið góðs samstarfs með mínu fólki hér hjá Reykjanesbæ og bæjarbúum öllum. Mér þykir vænt um þennan bæ og vil fá tækifæri til að vinna að þessu verkefni áfram. Ég veit að ég hef góðan stuðning til þess en veit líka að ég þarf góðan stuðning. Það er mikilvægt að hafa þessa góðu samstöðu sem bæjarbúar eru að sýna með stuðningi við D-lista sjálfstæðismanna.
Video: Viðtalið við Árna Sigfússon í formi sjónvarpsviðtals er hér.