Bygg
Bygg

Fréttir

Video: Ofnsteiktur hangiframpartur
Mánudagur 29. desember 2008 kl. 13:09

Video: Ofnsteiktur hangiframpartur




Axel Jónsson veitingamaður mælir með heilsteiktum hangiframparti sem þrettándamat á heimilum á Suðurnesjum. Í meðfylgjandi myndbandi kennir Axel matreiðslu á hangiframparti og meðlæti með honum. Hér að neðan eru síðan uppskriftir sem stuðst er við í myndbandinu. Hægt er að sjá myndbandið í Vefsjónvarpi Víkurfrétta eða með því að smella á efstu myndina í þessari frétt.




Bílakjarninn
Bílakjarninn

Heilsteikur hangiframpartur frá KEA Norðlenska

Setjið hangiframpartinn eins og hann kemur fyrir á grind á ofnskúffuna í ofninn.
Látið heitt vatn í ofnskúffuna og setjið ofninn á 160 gráður og steikið hangiframpartinn í eina klukkustund og fjörutíu mínútur.
Takið hann út og hjúpið með gljáanum, uppskriftin er gefin hér fyrir neðan og steikið í 10 mínútur í viðbót.




Brúnaðar kartöflur
Takið pönnu og hitið vel, látið smjörlíkisklípu á hana ásamt sykrinum. Bíðið þar til að sykurinn hitnar og verði brúnn samt ekki dökkur (sjá myndband í vefsjónvarpi Víkurfrétta). Um leið og bólurnar koma látið þið kartöflurnar á pönnuna og smá vatn. Látið sjóða niður í ca. 10 mínútur.



Rjómasveppasósa
Gerið smjörbollu í potti og látið soðið af dósasveppunum út í ásamt súputeningunum og rjómanum.
Hrærið vel í og leyfið suðunni að koma upp bragðbætið með salti.



Eplasalat
Létt þeytið rjóma og blandið smá sýrðum rjóma saman við ásamt smá sykri smakkið til og látið síðan söxuð GRÆN epli útí og örlíðið af smátt saxaðri steinselju. Rosalega gott með þessum rétti.



Brúnað rauðkál
Takið rauðkál og saxið það niður og brúðið allveg eins og þegar þið brúnið kartöflur nema þið notið eins og áður sagði rauðkál en ekki kartöflur, leifið þessu að sjóða vel niður, þið megið nota meira af vatni í þessu tilfellil.