Video: Fljúgandi furðuhlutur í Keflavík!
Ein af undarlegustu flugvélum heims hafði viðkomu á Keflavíkurflugvelli í kvöld þegar þessi Airbus Beluga flutningavél hafði hér viðkomu á leið sinni vestur um haf. Vélin kom til Keflavíkur frá Edinborg í Skotlandi og er næsti áfangastaður Grænland. Þaðan mun vélin síðan halda áleiðis til Flórída í Bandaríkjunum.
Vélin er að flytja farm fyrir bandarísku geimvísindastofnunina NASA.
Flugdrægni vélarinnar er takmörkuð. Hún getur að hámarki flutt 47 tonna farm en þá getur hún ekki flogið nema rúma 2000 kílómetra. Gert er ráð fyrir að furðuflugvélin haldi frá Keflavík kl. 09 í fyrramálið.
Video: Fljúgandi furðuhluturinn frá Airbus í Keflavík í kvöld.