Video: Erling KE kemur til hafnar
Nú líður senn að vertíðarlokum hja Erling KE 140 þar sem verulega er farið að saxast á aflaheimildirnar eftir gjöfulan vetur.
Erling kom í land á þriðjudag með 30 tonn af þorski sem komu í sjö netatrossur. Víkurfréttir litu við á hafnarbakkanum og tóku skipstjórann, Hafþór Þórðarson, tali og spurðu út í veiðiskapinn, tíðarfarið og fleira. Viðtalið má sjá í Vefsjónvarpi Víkurfrétta til hægri á síðunni.
VF-mynd/elg: Hamagangur í lestinni í löndun.