Bygg
Bygg

Fréttir

Video: Einn gestur á hverri sekúndu skoðaði eldingavideo
Fimmtudagur 21. janúar 2010 kl. 10:42

Video: Einn gestur á hverri sekúndu skoðaði eldingavideo

Gríðarlegt álag var á vef Víkurfrétta síðdegis í gær og í gærkvöldi vegna eldingaveðursins sem gekk yfir Suðurnesin. Þúsundir tölva tengdust vf.is og um tíma smelltu yfir einn á hverri sekúndu á myndskeið sem sýndi eldingar yfir Reykjanesbæ.

Myndskeiðið fékk athygli langt út fyrir Suðurnesin því stórir fréttavefir eins og vefur Ríkisútvarpsins og Vísir settu tengingar á myndskeiðið. Þá setti Eyjan tengingu yfir á frétt Vísis. Til þess að auka enn á umferðina inn á vef Víkurfrétta, þá var greint frá myndskeiðinu í fréttayfirliti á Bylgjunni kl. 18 í gærkvöldi og aftur í símatíma rétt fyrir kl. 18:30.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Vefurinn okkar stóðst áhlaupið, ef svo má að orði komast, þó um tíma hafi tekið einhverjar sekúndur að komast inn.