Video: Eðla ullar á myndatökumann
Hvort eðlan, sem handsömuð var við Heiðarból í Keflavík í gær, hafi verið að senda einhver skilaboð með því að ulla framan í myndatökumann VF, skal ósagt látið. Kannski vildi hún bara segja „Skítt með kerfið“ eins og svo vinsælt er í dag. Það er hlutskipti eðlunnar að verða tekin af lífi með eitri, en eðlur sem þessar eru ekki leyfilegar hér á landi. Hvernig hún komst út á götu í Keflavík er ráðgáta. Eflaust hefur hún strokið frá eiganda sínum, sem hefur flutt hana inn eftir krókaleiðum til landsins. Meðfylgjandi eru myndir í Sjónvarpi Víkurfrétta hér á vf.is af eðlunni í búri hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja. Búrið er grænt að innan. Takið eftir því hvaða lit eðlan er að taka á sig.