Krambúðinn 4-7 sept
Krambúðinn 4-7 sept

Fréttir

Video: Bláa lónið stækkað
Sunnudagur 9. október 2005 kl. 16:45

Video: Bláa lónið stækkað

Ákveðið hefur verið að ráðast í umtalsverða stækkun og breytingar á Bláa Lóninu – heilsulind. Hönnunarsamningar vegna verkefnisins hafa verið gerðir við VA Arkitekta, Fjarhitun, Rafteikningu og Verkfræðistofu Suðurnesja. Samningarnir voru undirritaðir í Bláa Lóninu - heilsulind miðvikudaginn 5. október.

Framkvæmdirnar felast bæði í stækkun á húsnæði og á baðlóni sem verður stækkað úr 5000 fm í 7.500 fm. Búnings- og baðaðstaða verður einnig stækkuð og endurhönnuð. Breytingar verða jafnframt gerðar á núverandi veitingasal og nýr og glæsilegur 400 m2 veislu- og veitingasalur tekinn í notkun. Verslun verður stækkuð og ný skrifstofuaðstaða byggð. Alls nemur stækkun á húsnæði 3000 fm. Stækkun og breytingar á heilsulind miðast við að auka á einstaka upplifun gesta. Áætluð verklok eru á öðrum ársfjórðungi 2007. Kostnaður vegna verkefnisins er 800 mkr.

Víkurfréttir unnu sjónvarpsfrétt um framkvæmdina fyrir Stöð 2. Fréttina má nálgast hér að neðan.

Video: Bláa lónið stækkað fyrir 800 milljónir kr. (.mov)
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25