Video: Bláa lónið er best í baráttunni við psoriasis
Bláa lónið er besta vopnið sem til er í baráttunni við psoriasis og hverrgi í heiminum finnst betri meðferð við sjúkdómnum en í Bláa lóninu. SPOEX, Samtök Psoriasis- og exemsjúklinga, veittu í dag Grími Sæmundsen, lækni og forstjóra Bláa Lónsins, viðurkenningu fyrir framlag hans til málefna psoriasissjúklinga á Íslandi. Það var Valgerður Auðunsdóttir, formaður SPOEX, sem afhenti viðurkenninguna. Í dag er alheimsdagur psoriasis. Í meðfylgjandi myndbandi eru viðtöl við þau Valgerði og Grím sem tekin voru í dag í lækningalind Bláa lónsins.