Video: 3000 börn settu Ljósanótt
Ljósanótt 2008 var sett í blíðskaparveðri nú fyrir hádegi með þátttöku 3000 leik- og grunnskólabarna í Reykjanesbæ, sem að venju slepptu blöðrum í þúsundavís. Áður en að því kom var Ljósanæturlagið sungið, Gospelkór barna kom fram og svo var tekið hraustlega undir með Ingó sem flutti nokkur lög. Þar með er níunda Ljósanóttin gengin í garð. Víkurfréttir tóku viðtöl við þá Árna Sigfússon bæjarstjóra og Steinþór Jónsson, formann Ljósanæturnefndar. Þau má finna í Vefsjónvarpi Víkurfrétta hér á vf.is