Bygg
Bygg

Fréttir

Miðvikudagur 25. apríl 2001 kl. 15:55

Viðbúnaður við lendingu breiðþotu á Keflavíkurflugvelli

Viðbúnaður slökkviliðs var þegar vél bandaríska flugfélagsins Delta lenti á Keflavíkurflugvelli um kl. hálf tvö í dag. Flugstjóri flugvélarinnar tilkynnti um að viðvörunarljós væri í mælaborði í flugstjórnarklefa og að þar fyndist brunalykt. Ljósið gaf til kynna að bilun væri í vökvakerfi vélarinnar. Hann óskaði eftir leyfi til að lenda vélinni í Keflavík. Flugvirkjar Flugleiða eru að leita bilunarinnar en þeim 141 farþegum og áhafnarmeðlimum sem um borð eru hefur ekki verið leyft að fara frá borði.

Á lokastefnu sagði flugstjórinn að ekki væri um neyð að ræða og því var ekki sett í gang neyðaráætlun flugvallarins. Vélin lenti heilu og höldnu og fór sjálf upp að Flugstöð Leifs Eiríkssonar, að sögn Björns Inga Knútssonar, flugvallarstjóra á Keflavíkurflugvelli. Ekki er enn vitað hver bilunin er.
Vélin var á leið frá Brussel til Atlanta í Bandaríkjunum og var í yfirflugi yfir Íslandi þegar bilunin kom upp. Frá þessu er greint á fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is í dag.
Bílakjarninn
Bílakjarninn