Fimmtudagur 15. júlí 2004 kl. 09:02
Víða skúrir síðdegis
Klukkan 6 var hæg austlæg eða breytileg átt, dálítil rigning norðvestantil og skúrir við suðurströndina. Hiti 6 til 12 stig.
Hæg austlæg átt. Dálítil rigning norðvestantil í fyrstu, annars skýjað með köflum og víða skúrir til landsins síðdegis. Hiti 10 til 18 stig að deginum.