Víða skúrir í dag

Vestlæg átt, 5-13 m/s og skúrir, en vaxandi norðan og norðaustanátt norðvestantil, 8-15 kringum hádegi. Norðlægari um norðanvert landið í dag, en lægir sunnanlands. Víða dálitlar skúrir í dag, en yfirleitt léttskýjað suðaustantil. Vaxandi austanátt um sunnanvert landið og þykknar upp í nótt. Austan 8-13 og rigning á morgun, en þurrt að kalla norðaustantil fram eftir degi. Hiti víða 5 til 10 stig, en 10 til 15 á Suðausturlandi í dag.