Víða hálkublettir í dag
Hálkublettir eru á Reykjanesbraut, Grindavíkurvegi, Sandgerðisvegi, Garðvegi og á Vogavegi í dag, samkvæmt upplýsingum á vef Vegagerðarinnar. Á Hafnavegi er hálka. Það er því vissara fyrir vegfarendur að gefa sér góðan tíma í ferðir á milli staða og fara varlega.