Víða él eða skúrir en bjartviðri sunnanlands

Skammt V af Reykjanesi er 990 mb lægð sem þokast suður og síðar austur á bóginn.
Veðurhorfur á landinu til kl. 18 á morgun:
Norðaustan 8-13 m/s norðvestantil, en hægari annars staðar. Víða él eða skúrir og hiti 0 til 5 stig. Norðan 5-10 í nótt og á morgun, dálítil él norðantil á landinu, en bjartviðri sunnanlands. Frost 0 til 5 stig, en frostlaust sunnantil að deginum.