HSS
HSS

Fréttir

„Við gefum líf“-verkefnið kynnt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Starfsmenn HSS fylgjast með kynningunni.
Miðvikudagur 12. desember 2018 kl. 09:55

„Við gefum líf“-verkefnið kynnt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

 
„Við fengum spurningar og ábendingar á Suðurnesjum sem eru verkefninu afar mikilvægar og stuðla að því að skerpa áherslur við framkvæmd þess og kynningu,“ segir Jórlaug Heimisdóttir, verkefnisstjóri hjá embætti landlæknis. 
 
Jórlaug og Runólfur Pálsson, læknir á Landspítala, hittu starfsmenn Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja í hádeginu í gær, þriðjudag, og fjölluðu um breytt lög um líffæragjafir sem taka gildi hér á landi á nýársdag. Þá verða landsmenn sjálfkrafa líffæragjafar, nema þeir skrái sérstaklega andstöðu sína við að gefa líffæri.
 
Líflegar umræður urðu á fundinum að loknum framsöguerindum og ýmislegt kom þar fram sem forystumönnum verkefnisins þótti fengur að.
 
 
Meðal fundarmanna var Karen Rúnarsdóttir lífeindafræðingur á rannsóknastofnun Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Hún rannsakaði á sínum tíma viðhorf Íslendinga til ætlaðs samþykkis við líffæragjafir í meistaranámi sínu við Háskólann á Akureyri. Ný og breytt lög kveða einmitt á um ætlað samþykki.
 
Karen var fyrsti höfundur að grein um verkefnið í Læknablaðinu á árinu 2014. Hún hitti fyrir í dag Runólf Pálsson sem ritrýndi greinina á sínum tíma og vitnar oft í skýrar niðurstöður rannsóknarinnar.
 
Yfir 80% svarenda reyndust fylgjandi ætluðu samþykki við líffæragjafir. Konur voru enn jákvæðari en karlar (85% kvenna en 76% karla).
 
Breytt lög um líffæragjafir verða kynnt á vegum landlæknis í öllum heilbrigðisumdæmum landsins. Fyrstu fundirnir voru á Sauðárkróki, Akureyri, Ísafirði, Landspítala við Hringbraut og nú á Suðurnesjum.

 
Runólfur Pálsson, læknir á Landspítala; Karen Rúnarsdóttir, lífeindafræðingur á rannsóknastofu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja; Jórlaug Heimisdóttir verkefnisstjóri hjá landlækni; Fjölnir Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri lækninga á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn