Heklan
Heklan

Fréttir

VF í 30 ár: Forsetinn opnar Bláa Lónið
Miðvikudagur 6. júní 2012 kl. 11:44

VF í 30 ár: Forsetinn opnar Bláa Lónið



Bláa Lónið opnaði nýja og glæsilega aðstöðu sína í Júlímánuði árið 1999. Fyrstu opnunarhelgina gerðu 10 þúsund manns sér ferð til þess að baða sig og njóta veitinga í þessu stórbrotna umhverfi sem hýsir vinsælasta ferðamannastað á landinu. Ólafur Ragnar Grímsson var forseti Íslands á þeim tíma líkt og nú, en hann vígði nýja Lónið. Hann sagði þessa glæsilegu heilsulind vera merki um dug og áræðni Suðurnesjamanna. „Enn á ný hefur sannast að hér býr vösk sveit frumkvöðla,“ sagði forsetinn í ræðu sinni árið 1999 við opnunarathöfnina.

Frá þessu er greint í Víkurfréttum þann 22. júlí og prýðir stór mynd af Bláa Lóninu forsíðu blaðsins ásamt mynd af Ólafi Ragnari, Eðvarði Júlíussyni og Grími Sæmundsen.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk
VF jól 25
VF jól 25