Bygg
Bygg

Fréttir

Föstudagur 9. febrúar 2001 kl. 01:46

Vextir viðbótarlána orðnir hærri en vextir lífeyrissjóðslána

Fjölskyldu-og félagsmálaráð hefur miklar áhyggjur af þeim vaxtahækkunum sem hafa orðið á viðbótarlánum húsnæðislána og lánum til að breyta innlausnaríbúðum í leiguíbúðir.
Ráðið lagði fram bókun á fundi sínum 15. janúar sl. og þar segir m.a. að skv. skilningi ráðsins hafi vibótarlán verið hugsuð sem félagsleg aðstoð við einstaklinga og fjölskyldur sem ekki gátu leyst sín húsnæðiskaup á almennum markaði. „Lokun félagslega eignaríbúðakerfisins hefur haft þau áhrif að verð húsnæðis hefur hækkað, auk þess sem vextir hafa einnig hækkað. Afleiðingin er mikil eftirspurn í félagslegt leiguhúsnæði sem sveitarfélagið nær ekki að anna og erfiðari aðstæður en áður hafa þekkst. Orð félagsmálaráðherra um að þetta verði bætt í vaxtabótum fá ekki staðist þar sem þak er bæði á vaxtabótum og húsaleigubótum sem ekki hefur fylgt eftir þessari þróun. Vextir á viðbótarlánum húsnæðislána er nú orðnir hærri en vextir einstakra lífeyrissjóðslána“, eins og segir orðrétt í bókuninni.
Bílakjarninn
Bílakjarninn