Vetraráætlun strætó á Suðurnesjum
-breytingar og viðbætur kynntar
Vetraráætlun strætó á Suðurnesjum tekur gildi þann 16. ágúst n.k. en upplýsingar um gjaldskrá og kaup á nemakortum verða aðgengilegar von bráðar á straeto.is.
					Leið 55 mun aka Hringbraut í síðustu þremur ferðunum á kvöldin í átt til FLE, þ.e. í ferðum kl. 19:23 frá Umferðarmiðstöð, kl. 21:55 frá Firði og kl. 23:55 frá Firði. Í þessum ferðum bætast því við biðstöðvarnar Hringbraut/Knattspyrnuvöllur, Hringbraut/Norðurtún og Hringbraut/Melteigur.
					
					Biðstöðin FLE-Koma verður færð aðeins til á planinu fyrir utan FLE og ferðir bætast við leið 88 kl.. 15:28 á fimmtudögum og föstudögum og kl. 14:28 á föstudögum frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Einnig mun bætast við ferð kl. 14:55 frá Grindavík á föstudögum.
					
					Þá mun biðstöðin „Þekkingarsetur Suðurnesja“ bætast við í Sandgerði á leið 89 í átt til Reykjanesbæjar.


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				