„Verum víðsýnir og hjálpsöm í garð nágranna“, segir Ellert Eiríksson

Stutt móttökuathöfn fór fram í Leifsstöð þar sem fólkið var boðið hjartanlega velkomið. Eiginkonunum í hópnum voru færðir blómvendir og síðan var boðið uppá léttar veitingar í húsnæði Suðurnesjadeildar RKÍ í Reykjanesbæ.
Á næstu vikum munu stuðningsfjölskyldur koma til skjalanna og hjálpa flóttafólkinu að aðlagast íslensku þjóðfélagi. Á svæðinu búa nokkrir Júgóslavar sem eru einnig tilbúnir til að aðstoða eftir mætti og fólkið verður með túlk á sínum snærum næstu vikurnar. Í lok júní hefst sumarskóli sem stendur í átta vikur. Sigríður J. Jóhannesdóttir er verkefnisstjóri í Reykjanesbæ.
Ellert Eiríksson bæjarstjóri Reykjanesbæjar sló á létta strengi við móttökuathöfnina; sagði nokkur orð á serbó-króatísku og sagði síðan að þau þyrftu nauðsynlega að læra eitt orð á íslensku, og það væri „jæja“.
Í fréttabréfi RKÍ segir Ellert að með þessu verkefni séu Reyknesbæingar að leggja sitt af mörkum til að veita fórnarlömbum stríðsátaka, tækifæri til að lifa eðlilegu lífi. Hann bendir jafnframt á að Íslendingar séu aðilar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og hafi samþykkt að taka á móti flóttafólki, jafnt og aðrar þjóðir.
„Bæjarstjórn Reykjanesbæjar er einhuga um að okkur beri skylda til að sinna verkefninu af alúð og kostgæfni, einnig að sýna það í verki að íbúar Reykjanesbæjar eru umburðalyndir, víðsýnir og hjálpsamir í garð nágranna, án tillits til þjóðernis“, segir Ellert í ávarpi sínu og segist jafnframt vonast til að hið nýja samfélag muni veita flóttafólkinu trú og traust á nýjan leik og að það öðlist sess í samfélaginu sem nýtir og góðir þegnar.