Fréttir

Verulega dregið úr virkni og gosóróa
Frá gosstöðvunum fyrr í dag. VF/Hilmar Bragi
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
fimmtudaginn 30. maí 2024 kl. 00:27

Verulega dregið úr virkni og gosóróa

Verulega hefur dregið úr kvikustrókavirkni á gossprungunni við Sundhnúksgígaröðina og hefur virknin einangrast á að því er virðist sex gosop norðarlega á sprungunni.

Hraunrennsli er nú mest á svæðinu í kringum norðurhluta sprungunnar og við Sýlingarfell. Hægt hefur á framrás hraunrennslis við Grindavíkurveg til móts við Svartsengi og við varnargarðana vestur af Grindavík.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Engin sprengivirkni sést lengur og sáralítil skjálftavirkni mælist. Samfara því að dregið hefur úr virkni gossins hefur gosórói einnig minnkað mikið.

Myndasafn frá gosstöðvunum neðar á síðunni.

Eldgos við Sundhnúk 29. maí 2024 // Myndasafn #1

Bílakjarninn
Bílakjarninn