Vertu eldklár á þínu heimili
Árlegt forvarnarátaki HMS og Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna fór í gang 1. desember og mun átakið vara út desember.
Í fréttatilkynningu frá aðstandendum átaksins er fólk hvatt til að kanna nauðsynlega þætti á sínum heimilum eins og:
- Reyksynjara í öll herbergi
- Heimilisfólk þekki flóttaleiðir út af heimilinu
- Slökkvitæki eiga að staðsett við útgang og flóttaleiðir
- Eldvarnateppi aðgengileg og sýnileg í eldhúsi.
HMS hefur unnið viðtal við Sólrúnu Öldu Waldorff sem brenndist alvarlega þegar eldsvoði kom upp í íbúð í Mávahlíð árið 2019 og deilir hún lífsreynslu sinni með okkur til að efla umræðuna á sviði forvarna. Í viðtalinu er einnig rætt við slökkviliðsmennina sem unnu á vettvangi brunans þá Loft Þór Einarsson og Jón Þór Elíasson. Viðtalið má sjá hér að neðan og er einnig birt í heild sinni á vef HMS, facebook og Youtube rás Vertu eldklár.
Sjá nánar um brunavarnir heimilisins á www.vertueldklar.is
Facebook síða Vertu eldklár: https://www.facebook.com/brunavarnaatak
Youtube rás Vertu eldklár: https://www.youtube.com/channel/UC95zi3AdmM1l3OqzQIec5rQ