Bygg
Bygg

Fréttir

Miðvikudagur 5. september 2001 kl. 09:24

Vertíðin byrjar vel hjá dragnótabátum

Það var handagangur í öskjunni við Keflavíkurhöfn sl. mánudagskvöld, þegar dragnótabátarnir komu í land með góðan afla. Bátarnir voru við veiðar í Garðsjónum og komu með á bilinu 10-18 tonn, mest sandkola.

Mynd: Kátir voru karlar...
„Það er ekki annað hægt að segja en að vertíðin fari vel af stað. Þetta er kannski ekki eins gott og á árum áður, en þó betri byrjun en í fyrra“, segir Guðrún Gunnarsdóttir vigtarmaður hjá Hafnarsamlagi Suðurnesja.
Bátarnir komu hver á fætur öðrum að bryggju frá kl. átta um kvöldið og voru að landa fram á nótt. Sumum skipverjum þótti nóg um og létu sig hverfa að löndun lokinni. „Þeir komu hingað tveir að vestan til að fara á snurvoð en létu ekki sjá sig aftur í morgun þegar bátarnir voru að fara að leggja af stað. Það varð því að redda nýjum mönnum í snarhasti. Þetta er reyndar gömul saga og ný en við auglýsum hér með eftir þessum ungu mönnum“, segir Guðrún og hlær.
Örninn var aflahæstur eftir túrinn á mánudaginn eða með rúm 18 tonn, Benni Sæm kom með rúm 17, Eyvindur með rúm 15, Farsæll með tæp 13, Árni með um 13 tonn og Baldur með 10 tonn. Bátarnir fóru allir til veiða snemma á þriðjudagsmorgun, enda engin ástæða til að vera í landi þegar vel veiðist.
Grétar Þorgeirsson skipsstjóri á Farsæl var ánægður með veiðina síðustu daga. Þegar VF hafði samband við hann var hann við veiðar á Garðsjó en bátarnir hafa verið að veiðum þar að undanförnu. „Ætli við séum ekki komnir með tíu tonn núna en í gær vorum við með 13 tonn í þreumur köstum. Það lítur allt út fyrir að við tökum þetta í fjórum núna“, segir Grétar. Hann segir sandkolann sem veiðist mjög góðan en það er meira af rauðsprettu en verið hefur. „Ég held það hafi ekki verið svona góð byrjun á veiðum í 4-5 ár“, segir Grétar að lokum.
Bílakjarninn
Bílakjarninn