Verslunarmannahelgin: Ætla að keppa í fótbolta á unglingalandsmótinu
-Nína Björk Gunnarsdóttir
Nína Björk Gunnarsdóttir ætlar að keppa með fótboltaliðinu sínu í fótbolta á unglingalandsmóti á Akureyri.
Hvað finnst þér einkenna góða verslunarmannahelgi og finnst þér eitthvað vera ómissandi um þessa helgi?
Mér finnst alveg ómissandi að fara með liðinu mínu á ULM, spila fótbolta og vera með frábæru fólki er toppurinn.
Er einhver verslunarmannahelgi sem er eftirminnilegri en aðrar hjá þér?
Ég fór í fyrra á unglingalandsmótið á Sauðárkróki sem var mjög gaman og eftirminnilegt.