Bygg
Bygg

Fréttir

Verslunar- og þjónustuhús rís í Garði
Mánudagur 11. október 2004 kl. 13:58

Verslunar- og þjónustuhús rís í Garði

Fyrirhugað er að byggja verslunar- og þjónustuhús á horni Gerðavegar og Garðbrautar í Garði.

Á síðasta fundi Bæjarstjórnar Garðs var deiliskipulag við Sunnubraut samþykkt með 6 atkvæðum gegn 1 atkvæði. Það gerir ráð fyrir að húsið rísi þar sem hús Sparisjóðsins er nú. Deiliskipulagið hefur verið sent til Skipulagsstofnunar til staðfestingar.

Ekki voru allir fullkomlega sáttir við fyrirhugaðar framkvæmdir og lagði Arnar Sigurjónsson, fulltrúi I-listans, fram tillögu um að húsið rísi annars staðar. Telur hann að meiri sátt skapist um bygginguna ef það rísi að Garðbraut 51.

Tillagan var felld með þremur atkvæðum F-lista, fulltrúar I-lista greiddu tillögunni atkvæði og einn fulltrúi F-lista sat hjá ásamt fulltrúa H-lista.
Bílakjarninn
Bílakjarninn