Verktakafyrirtækin róa lífróður
-á meðan beðið er eftir fjárfestingasamningum vegna þriggja stórverkefna
Beðið er eftir fjárfestingasamningum frá ríkinu vegna þriggja stórverkefna á Suðurnesjum sem skapa munu hundruði starfa. Verkefnalaus verktakafyrirtæki róa á meðan lífróður og er mikillar óþreyju farið að gæta með kyrrstöðuna sem málin virðast vera í. Tæplega tvö þúsund manns eru nú atvinnulausir á Suðurnesjum og er stór hluti þess vinnuafls úr byggingariðnaði. Margir þeirra hugsa sér til hreyfings til annarra landa.
Sjá nánar í Víkurfréttum á morgun.