Sunnudagur 10. nóvember 2013 kl. 08:26
Verkfærum og þvottavél stolið
Verkfærum, þvottavél og timbri var stolið í innbroti sem tilkynnt var lögreglunni á Suðurnesjum í vikunni. Hurð húsnæðisins, sem um ræðir, hafði verið spennt upp og þeir sem þar voru að verki látið greipar sópa.
Lögregla rannsakar málið.