Verkfærum fyrir tugi þúsunda stolið
Verkfærum að verðmæti um 40 þúsund krónur var stolið úr bílskúr í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum nýverið. Um var að ræða stingsög, hjólsög og borvél með hleðslutæki.
Skúrinn var ólæstur og því átti hinn eða þeir fingralöngu sem þar voru á ferðinni hægt um vik. Ekki er vitað hverjir voru þarna að verki.