HSS
HSS

Fréttir

Verkefnalitlir iðnaðar- og verkamenn: Ætla að storma á fund félagsmálaráðherra í hádeginu
Föstudagur 16. október 2009 kl. 11:33

Verkefnalitlir iðnaðar- og verkamenn: Ætla að storma á fund félagsmálaráðherra í hádeginu

Verkefnalitlir iðnaðar- og verkamenn af Suðurnesjum ætla að fjölmenna á fund Árna Páls Árnasonar félagsmálaráðherra í Virkjun nú í hádeginu, samkvæmt heimildum Víkurfrétta. Atvinnuástandið er slæmt og blikur eru á lofti í stórum verkum sem nú eru í gangi, um að þar verði hægt mjög á framkvæmdum.


Fundurinn með Árna Páli er opinn fundur um atvinnumál á Suðurnesjum sem haldinn verður í Virkjun á Ásbrú í Reykjanesbæ eftir klukkustund eða kl. 12:30

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Fyrst mun ráðherran flytja stutt ávarp en síðan verður farið í spurningar og umræður.


Fundurinn er haldinn á vegum sjálfboðaliða í Virkjun í Reykjanesbæ og frá Deiglunni í Hafnarfirði. Fundurinn er opinn öllum þeim sem hafa áhuga á atvinnuástandinu í dag og aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að mæta atvinnuleysinu á landinu.