Bygg
Bygg

Fréttir

Verkáfanga fagnað í flugstöðinni
Mánudagur 23. október 2006 kl. 14:51

Verkáfanga fagnað í flugstöðinni

Viðbyggingin við sunnanverða Leifsstöð er risin og var þeim áfanga fagnað á föstudaginn þegar Verkefnisstjórn stækkunar og breytinga í flugstöðinni bauð starfsmönnum verktaka á svæðinu, og öðrum sem tengjast framkvæmdunum, að gera sér dagamun.


Byrjað er að innrétta á 2. hæð nýbyggingarinnar og næstu vikur og mánuði verður unnið við það af fullum krafti. Öll starfsemi á austursvæði 2. hæðar hefur verið flutt til vegna væntanlegra breytinga þar, nú síðast var útibú Landsbankans fært um set. Áður höfðu verslanirnar Optical Studio og Leonard verið fluttar og brottfararverslun Fríhafnarinnar er komin út á miðsvæðið.
Auðvitað er óhjákvæmilegt að þetta rask varði bæði starfsfólk og farþega á einn eða annan hátt. Á fosrsvarsmönnun flugstöðvarinnar er hins vegar að heyra að fólk sýni því mikinn skilning að framkvæmdirnar krefjist bráðabirgðaráðstafana af ýmsu tagi og valdi jafnvel einhverjum óþægindum.

 

Augljóslega er ekki alveg einfalt mál að standa í gríðarlega umfangsmiklum framkvæmdum nánast um alla bygginguna en sjá til þess í leiðinni að rekstur og starfsemi flugstöðvar gangi eðlilega fyrir sig á sama tíma. Segja má að Ístak, aðalverktaki framkvæmdanna í flugstöðinni, vinni því við óvenju erfiðar aðstæður.


Alls starfa að jafnaði 150-200 manns að framkvæmdum í flugstöðinni um þessar mundir og verða allt að 250 í einu þegar mest verður þegar framkvæmdirnar ná hámarki í vetur.

Bílakjarninn
Bílakjarninn