Fréttir

Verk- og starfsnámsaðstaða við FS stækkar um allt að 1.900 fermetra
Föstudagur 12. apríl 2024 kl. 06:07

Verk- og starfsnámsaðstaða við FS stækkar um allt að 1.900 fermetra

Allt að 1.900 fermetra stækkun verk- og starfsnámsaðstöðu við Fjölbrautaskóla Suðurnesja í Reykjanesbæ mun rísa á næstu árum samkvæmt samningi sem var undirritaður var síðasta laugardag milli mennta- og barnamálaráðuneytisins og sveitarfélaga á Suðurnesjum.

Frá undirritun samningsins: F.v.: Árni Gísli Árnason, staðgengill bæjarstjóra Suðurnesjabæjar, Kristján P. Ásmundsson, skólameistari Fjölbrautaskólans á Suðurnesjum, Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, og Gunnar Axel Axelsson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga.

Frumathugun á framkvæmdinni er í höndum Framkvæmdasýslu ríkisins en skoðað verður að áfangaskipta henni. Í fyrri áfanga verður byggð allt að 1.400 fermetra viðbygging og í seinni áfanga verður byggð 500 fermetra bygging. Stofnkostnaður skiptist milli aðila og mun ríkissjóður greiða 60% en sveitarfélögin 40% samkvæmt samningi.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Stefnt er að því að byggja samtals 12.000 fermetra fyrir verk- og starfsnám um allt land auk nýrra höfuðstöðva Tækniskólans en Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur sett stækkun slíkra skóla í forgang á kjörtímabilinu. Þetta er í samræmi við þá miklu og auknu aðsókn sem hefur verið í verk- og starfsnám á undanförnum árum. Samningurinn sem undirritaður var í Reykjanesbæ er liður í þeim áformum en með undirrituninni er staðfest samkomulag milli ríkis og sveitarfélaganna um fjármögnun verkefnisins og eru næstu skref, undirbúningur, hönnun og bygging.