Bygg
Bygg

Fréttir

Verjast sjávarflóðum með vatni!
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
fimmtudaginn 13. febrúar 2025 kl. 06:16

Verjast sjávarflóðum með vatni!

Sérstökum aðferðum er beitt við Grindavíkurhöfn til að verjast sjávarflóðum. Þar eru  settir upp miklir varnarveggir með gúmmípulsum. Þegar von er á stórstraumsflóði og veðuraðstæður geta valdið því að sjórinn flæði langt upp á land eru pulsurnar fylltar af vatni og mynda þá varnarvegg og verja viðkvæma innviði við höfnina. Meðfylgjandi myndir voru teknar í Grindavík í síðustu viku þegar unnið var að því að dæla vatninu aftur úr varnarveggnum. VF/Hilmar Bragi

Bílakjarninn
Bílakjarninn