Föstudagur 7. desember 2001 kl. 18:22
Verið að höggva nýtt tré í Skorradal fyrir Reykjanesbæinga

Reykjanesbær mun kveikja á jólaljósum á nýju tré úr Skorradal í stað þess sem brotnaði í óveðrinu í Keflavík í dag. Tréð sem brotnaði er frá vinabæ Reykjanesbæjar í Kristiansand í Noregi en fulltrúi Norðmanna verður því að kveikja ljósin á sterkbyggðu íslensku tré í stað trésins frá Noregi.