VERÐUR HITAVEITA SUÐURNESJA AÐ HLUTAFÉLAGI?
Þorsteinn Erlingsson (D) lagði til á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar í fyrradag að skipuð yrði sérstök nefnd á vegum sveitarfélaga á Suðurnesjum og stjórnar og embættismanna Hitaveita Suðurnesja, til að undirbúa að HS verði breytt í hlutafélag.Í meðfylgjandi greinargerð Þorsteins kemur fram að Iðnaðarráðherra sé að undirbúa breytingu á orkulögum. Frumvarpið verður lagt fram á vorþingi og hin nýju lög verða samþykkt í árslok árið 2000. Í frumvarpinu og öllum tillögum sem fram hafa komið er gerð sú krafa að öllum raf- og hitaveitum verði breytt í hlutafélög. Eignarhlutur Reykjanesbæjar í HS er 52,2%. „Það er því sjálfsagt og eðlilegt að ákveðið frumkvæði komi frá Reykjanesbæ, þegar svo umfangsmiklar breytingar eru fyrirsjáanlegar, enda hagsmunir bæjarins miklir að vel takist til“, sagði Þorsteinn. Allir fulltrúar meirihlutans undirrituðu tillöguna. Jón Geirdal (J) lagði til að tillögunni yrði vísað til bæjarráðs. Hann spurði bæjarfulltrúa hvort tilgangurinn með að gera HS að hlutafélagi væri að eiga fyrir eyðslu meirihlutans. Skúli Þ. Skúlason (B) svaraði því til að tillaga Þorsteins gengi ekki útá að Reykjanesbær seldi sinn hlut í HS. Kristmundur Ásmundsson (J) sagðist ekki vera á móti því að HS yrði gert að hlutafélagi og taldi fulla ástæðu til að málið yrði skoðað. Hann benti jafnframt á að ekki hefði heldur staðið til að selja Búnaðarbankann og Landsbankann á sínum tíma. Bankarnir hefðu hins vegar verið seldir eftir að þeim var breytt í hlutafélög. Kristján Gunnarsson (J) sagðist fagna því að ekki stæði til að selja HS og benti fundarmönnum á að játningar meirihlutans væru komnar á segulband.