Verður hæsta hús Keflavíkur
Byggingarframkvæmdir við hæsta hús á Suðurnesjum hefst að öllum líkindum í haust. Róbert Svavarsson hjá Fídon ehf. hefur fengið byggingarleyfi fyrir 6-7 hæða húsi við Vatnsnesveg 29 í Keflavík.Að sögn Róberts verða 25 íbúðir í húsinu sem er sex og hálf hæð. Stærð íbúðanna er frá 90 til 142 fermetrar og eru fjórar íbúðir á hverri hæð. Húsið verður einum metra hærra en „Stóra blokkin“ sem er um 200 metrum ofar í bænum. Hverri íbúð fylgir bílageymsla sem verður undir húsinu en auk þess verða 25 bílastæði í kringum húsið. Róbert segir að svona íbúðir hafi vantað á fasteignamarkaðinn. „Ég tel að það hafi vantað íbúðir fyrir þá sem eru að fara úr stærri eignum en vilja vera áfram í veglegum íbúðum með minnsta viðhaldi. Þetta hús verður byggt með það í huga. Íbúðirnar verða með stórum stofum og svölum og verður skilað fullfrágengnum. Gólfplötur í húsinu verða hljóðeinangraðar en ekkert hús hér á svæðinu er þannig byggt. Þá geta kaupendur sem ákveða sig snemma, komið inn á byggingarstigi og haft áhrif á gólfefni og innréttingar“, sagði Róbert.
Að sögn Róberts hafa byggingaráform hans spurst út og segist hann hafa fundið fyrir miklum áhuga hjá mörgum.
Að sögn Róberts hafa byggingaráform hans spurst út og segist hann hafa fundið fyrir miklum áhuga hjá mörgum.