HSS
HSS

Fréttir

Verður beittur 30.000 kr. dagsektum verði þakið ekki lagað
Fimmtudagur 22. mars 2012 kl. 16:32

Verður beittur 30.000 kr. dagsektum verði þakið ekki lagað

Húseiganda í Garði hefur verið gefinn kostur á að lagfæra þak á húsi sínu og koma í veg fyrir frekara fok. Byggingarfulltrúi hefur þegar sent húseiganda bréf um ósk um úrbætur í tvígang. Húseigandi hefur ekki enn brugðist við, segir í fundargerð frá bygginarnefnd Sveitarfélagsins Garðs.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Skipulags- og byggingarnefnd hefur falið byggingarfulltrúa að koma í veg fyrir frekara fok af þakinu með því að setja net yfir þakið. Þá er húseiganda verði gefinn kostur á að lagfæra húsið fyrir 1. júní 2012. Að öðrum kosti verði hann beittur dagsektum að upphæð 30.000 krónur á dag. 

Myndirnar: Björgunarsveitin Ægir hefur ítrekað verið send að húsinu í Garði til að hefta fok af þaki þess. Nú fær eigandi hússins frest til 1. júní nk. til að laga þakið eða þarf að greiða 30.000 kr. sekt á hvern dag eftir 1. júní.