Bygg
Bygg

Fréttir

Verðsprengja í millilandaflugi: til Kanada frá 25 þúsund krónum
Föstudagur 17. janúar 2003 kl. 11:28

Verðsprengja í millilandaflugi: til Kanada frá 25 þúsund krónum

Kanadíska flugfélagið HMY Airways hefur fengið leyfi Flugmálastjórnar Íslands til farþegaflutninga frá Íslandi til Kanada. Flugfélagið mun fljúga vikulega til Vancouver og Calgary frá Íslandi. Fargjöld flugfélagsins til Kanada kosta 25 þúsund krónur út febrúar og 30 þúsund krónur í mars og apríl. Verðin eru öll með flugvallarsköttum og eru öll sætin á umræddu tímabili á þessu verði. Gert er ráð fyrir að í sumar muni flugtíðni aukast og að í boði verði allt að fimm flug á viku.Frá 16. desember hefur flugfélagið haft viðkomu á Keflavíkurflugvelli á leið sinni til Manchester í Englandi, en flugfélagið er með tvær Boeing 757 flugfélagar í rekstri.
Steinþór Jónsson hótelstjóri Hótels Keflavíkur og umboðsmaður HMY á Íslandi segist vera mjög ánægður með afgreiðslu Samgönguráðuneytisins og Flugmálastjórnar í málefnum flugfélagsins: „Afgreiðsla ráðuneytisins og Flugmálastjórnar var hröð og fagleg og ég er mjög ánægður með að sjá þessar breyttu áherslur hjá samgönguyfirvöldum.“ Steinþór segir að með leyfinu opnist mikil tækifæri fyrir Íslendinga í ferðalögum vestur um haf: „Að sjálfsögðu verður lögð ofuráhersla á að ná ferðamönnum frá vestur Kanada til Íslands, enda um nýtt markaðssvæði að ræða. Ég er þess fullviss að Íslendingar komi til með að nýta sér þetta lága fargjald til Kanada, enda eru ferðamöguleikar á svæðinu óendanlegir, s.s. skíðaferðir í Klettafjöllin, stórborgarferðir og framhaldsferðir til áfangastaða um allan heim. Ég átti alltaf von á því að fargjöld með flugfélaginu yrðu hagstæð, en ég verð að segja að þessi verð komu mér þægilega á óvart, enda er um að ræða fargjald með góðu flugfélagi og fullri þjónustu,“ sagði Steinþór í samtali við Víkurfréttir.
Bílakjarninn
Bílakjarninn