Fréttir

Verðmætum verkfærum stolið
Þriðjudagur 3. maí 2016 kl. 15:30

Verðmætum verkfærum stolið

Hleðsluborvél og fylgihlutir, að verðmæti um 50.000 krónur var meðal þeirra muna sem stolið var í innbroti í húsnæði í Keflavík í gær. Sá eða þeir sem þar voru að verki höfðu farið inn með því að spenna upp stormjárn í glugga. Auk borvélarinnar hurfu fleiri fleiri tæki, en ekki er vitað nákvæmlega hversu mörg né hvaða verðmæti er um að ræða. Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar málið.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024