Verðmætum verkfærum stolið
Hleðsluborvél og fylgihlutir, að verðmæti um 50.000 krónur var meðal þeirra muna sem stolið var í innbroti í húsnæði í Keflavík í gær. Sá eða þeir sem þar voru að verki höfðu farið inn með því að spenna upp stormjárn í glugga. Auk borvélarinnar hurfu fleiri fleiri tæki, en ekki er vitað nákvæmlega hversu mörg né hvaða verðmæti er um að ræða. Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar málið.