Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Verðmæti í rusli: Henti 15.000 krónum á víðavangi
Laugardagur 1. mars 2008 kl. 12:30

Verðmæti í rusli: Henti 15.000 krónum á víðavangi

Sumir vita ekkert hvað þeir eiga að gera við peningana sína og fara því með þá út fyrir bæinn og skilja þá þar eftir í þeirri von að einhver finni þá og eyði þeim í eitthvað skemmtilegt. Nýverið fór einhver með 15.000 krónur og skildi þær eftir á útivistarsvæði Vogamanna undir Vogastapa. Ótrúlegt, en því miður satt.

15.000 krónurnar liggja í bílhræi sem skilið var eftir á svæðinu. Hjá úrvinnslusjóði er greitt skilagjald fyrir bifreiðar sem afskráðar hafa verið og skilað er inn til förgunar.  Á heimasíðu sjóðsins á www.urvinnslusjodur.is er nánari útlistun á fyrirkomulaginu en þar stendur meðal annars:

“Greiða skal skilagjald, 15.000 kr., hverjum þeim sem afhendir gjaldskylt ökutæki til móttökustöðvar til endurnýtingar eða endanlegrar förgunar, enda hafi ökutækið verið afskráð og úrvinnslugjald greitt a.m.k. einu sinni af viðkomandi ökutæki.”

Um tíu til fimmtán þúsund bílum er fargað á hverju ári á Íslandi.  Þegar farið er með bíl til niðurrifs, t.d. hjá Hringrás eða Furu, er bíllinn pressaður saman þannig að rúmmál hans minnkar margfalt.  Þannig eru bílarnir sendir úr landi.  Þar eru þeir tættir niður og málmur flokkaður frá öðrum efnum.  Málmurinn er svo bræddur og endurnýttur í margvíslega hluti.  Gamli bíllinn gæti þannig orðið að nýjum eldhúsvaski, skrúfu, niðursuðudós eða jafnvel öðrum bíl.  Höfum það í huga þegar bílhræ eða járnabrak er annars vegar.

Á vef Sveitarfélagsins Voga segir: Nokkuð er af bílhræjum í Vogunum og á Vatnsleysuströnd.  Það er ekki úr vegi að nota tækifærið og hvetja eigendur þeirra til að losa sig við þau og hafa þá í huga úrræðið sem nefnt er að framan.  Að draga bílinn út fyrir bæinn og skilja þar eftir sjálfum sér og öðrum til ama er ekki lausn sem við sættum okkur við.

Sverrir Agnarsson, starfsmaður sveitarfélagsins, væri vís með að veita góð ráð og aðstoð ef með þarf, segir að endingu á síðunni.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024