Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Verðmætabjörgun íbúa og fyrirtækja verður svona í dag
Ljósmynd: Jón Steinar Sæmundsson
Föstudagur 17. nóvember 2023 kl. 08:53

Verðmætabjörgun íbúa og fyrirtækja verður svona í dag

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um eftirfarandi aðgang íbúa að Grindavík í dag, 17. nóvember.

Búið er að hafa samband við þá íbúa Grindavíkur sem eiga þess kost að fara inn í bæinn í dag.   Vakin er athygli á því að þeir einir fá að fara inn í bæinn sem aðgerðastjórnin í Reykjanesbæ hefur haft samband við.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Aðkomuleið fyrir íbúa til verðmætabjörgunar í dag verður einungis um Grindavíkurveg frá Reykjanesbraut.   Heimildin tekur til 90 fasteigna í Grindavík.   Aðgerðin hefst kl. 9.   Eftir kl. 14 í dag verður fyrirtækjum hleypt inn á svæðið.  Ítrekað er að þeir einir fara inn í Grindavík sem aðgerðastjórnin í Reykjanesbæ hefur haft samband við símleiðis.  

Íbúar eru upplýstir um framkvæmdina og hvenær þeir eiga að mæta við gatnamót Grindavíkurvegar og Reykjanesbrautar.  Íbúar verða fluttir með björgunarsveitarbifreiðum frá söfnunarstað utan Grindavíkur og frá heimilum í Grindavík til baka.

Áætlunin getur breyst án fyrirvara, en þetta verður skipulögð og stýrð aðgerð undir stjórn lögreglu.

Í dag eru viðbragðsaðilar að vinna inn á mesta hættusvæði Grindavíkur.  Til að tryggja öryggi viðbragsaðila og íbúa verður fjölmiðlafólki ekki hleypt inn fyrir lokunarpósta í dag.   Undanþágur frá drónabanni eru veittar en afgreiðsla beiðna er í höndum ríkislögreglustjóra.  Fjölmiðlar hafa þessar upplýsingar.

Íbúum Grindavíkurbæjar er bent á góða upplýsingagjöf á heimasíðu Grindavíkurbæjar www.grindavik.is og heimasíðu almannavarna www.almannavarnir.is

Til athugunar fyrir íbúa:

  • Ekki fara ef þú þarft ekki nauðsynlega að fara
  • Aðeins verður leyfi fyrir einn aðila að fara inn á svæðið, fyrir hvert heimili
  • Skráið niður lista yfir það sem þið hyggist sækja áður en lagt er af stað
  • Munið eftir húslykli
  • Búr fyrir gæludýr ef þörf er á
  • Poka eða annað undir muni
  • Íbúar hafa stuttan tíma inni á heimilinu.
  • Þau sem fara mega ekki vera með bráðaofnæmi fyrir dýrum því það verða gæludýr með í för í bakaleiðinni.
  • Þetta er eingöngu til þess sækja mjög mikilvæga hluti s.s. gæludýr, lífsnauðsynleg lyf, hugsanlega vegabréf eða aðra ómissandi hluti fyrir heimilisfólk
  • Mjög mikilvægt er að allir sem koma að þessari aðgerð hlýði vandlega öllum fyrirmælum lögreglu sem stýrir þessari aðgerð og virði tímamörk.