Sjómannakveðjur 2
Sjómannakveðjur 2

Fréttir

Fimmtudagur 23. september 1999 kl. 14:57

VERÐLAUNAGARÐAR Í VOGUM HEIÐARGERÐI TIL STAKRAR PRÝÐI

Íbúar að Heiðargerði 24 taka við viðurkenningu fegrunarnefndarinnar. Kristján Leifsson og María Óskarsdóttir eiga fallegasta garðinn í Vatnsleysustrandarhreppi 1999 og stofnun Skógræktar- og landgræðslufélagsins Skógfells var besta framtak ársins. „Fegrunarnefnd gerir að tillögu sinni að Heiðargerði 26, garður Kristjáns Leifssonar og Maríu Óskarsdóttur hljóti 1. verðlaun. Garðurinn er einstaklega glæsilegur og allt umhverfi húseignar er til stakrar prýði. Við viljum benda á að Heiðargerði 26 hlaut útnefningu fyrir 2-3 árum, en garðinum hefur verið gjörbreytt síðan síðan, þannig að alls ekki er um sama garð að ræða. Mjög mikil vinna hefur verið lögð í þessa lóð og smekkvísi og snyrtimennska í hávegum höfð. Besta framtakið teljum við vera stofnun Skógræktar- og Landgræðslufélagsins Skógfell en aðalhvatamaður stofnunar þess er Magnús Ágústsson. Stofnun Skógfells, stuðlar að fögru og bættu umhverfi, og verður vonandi hvatning að öflugu uppgræðslustarfi í framtíðinni.“ Eftirfarandi lóðir voru tilnefndar: garður Sigríðar Lárusdóttur og Magnúsar Sigurðssonar að Aragerði 13, Brekkugata 15 og Heiðargerði 29a. Stofnun Skógræktar- og landgræðslufélagsins Skógfells var besta framtak ársins og var verðlaunað sérstaklega.
Bílakjarninn
Bílakjarninn