Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Verðlaun fyrir besta barnaefnið á Netinu
Frá vinstri: Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Selma Hrönn Maríudóttir, Anna Margrét Ólafsdóttir, fulltrúi SAFT.
Miðvikudagur 6. febrúar 2013 kl. 18:03

Verðlaun fyrir besta barnaefnið á Netinu

- og þátttaka í Evrópusamkeppni

Í gær, á alþjóðlega netöryggisdeginum, hlaut Selma Hrönn Maríudóttir, höfundur Grallarasagna, verðlaun í samkeppni um besta barnaefnið á Netinu. Selma Hrönn býr í Sandgerði ásamt fjölskyldu sinni, þar sem hún skapar Grallarasögur og rekur jafnframt vefþjónustufyrirtæki sitt, Tónaflóð.

Í umsögn dómnefndar um Grallarasögur segir m.a., að verkefnið sé heildstætt með margvíslega notkunarmöguleika og mikla þróunarmöguleika í margar áttir. Það sé skemmtilegt, fræðandi og krefjandi og tali beint til aldursflokksins sem það sé hugsað fyrir.  Hönnun og myndefni sé í stíl við innihaldið, það sé til fyrirmyndar að bakland efnisins sé skýrt og traust, þ.e. fjölskylda grallaranna.

Evrópusamkeppni um besta barna- og unglingaefnið á Netinu er sameiginlegt átak netöryggismiðstöðva í Evrópu og þeirra þjóða sem starfa samkvæmt netöryggisáætlun Evrópusambandsins. Tilgangur samkeppninnar er að vekja athygli á gæðaefni fyrir 6-18 ára börn og unglinga sem er nú þegar til staðar á Netinu.

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, afhenti verðlaunin, en auk Selmu hlaut Anna Margrét Ólafsdóttir verðlaun fyrir verkefnið Paxel123.com

Samkeppni á landsvísu fer fram í 14 löndum og í framhaldi fer fram Evrópusamkeppni þar sem sigurvegararnir úr landskeppnunum etja kappi.


 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024