Bygg
Bygg

Fréttir

Fimmtudagur 15. júní 2000 kl. 11:00

Verðbréfaþing Íslands hf. aðili að NOREX

Verðbréfaþing Íslands hf. hefur boðað til fréttamannafundar kl. 13 í dag á Hótel Keflavík, í tilefni að samnings um aðild að NOREX, samstarfi kauphalla á Norðurlöndum.Einungis eru liðnir tæpir þrír mánuðir frá því að Verðbréfaþing skrifaði undir viljayfirlýsingu um inngöngu í NOREX-samstarfið. Að sögn forsvarsmanna fyrirtækisins er þetta stór skref fyrir þingið og markaðinn í heild. Þingist tengist með þessu samnorrænu viðskiptakerfi, SAXESS, og þar með opnast gáttir fyrir íslenska fjárfesta til útlanda og fyrir erlenda fjárfesta hingað til lands. Gert er ráð fyrir að viðskipti með íslensk verðbréf hefjist í nýja kerfinu í október.
Bílakjarninn
Bílakjarninn