Veltubíllinn í Reykjanesbæ

Samhliða útskrift nemenda frá Ökuskóla Suðurnesja kynnast nemendur nú á raunhæfan hátt gildi bílbeltanotkunar og hvernig losa eigi sig úr bílbelti ef bifreið endar á hvolfi. Með þessu fá sjúkraflutingamenn einnig tækifæri til þess að æfa sig við losun ökumanna úr bifreiðum við erfiðar aðstæður. Í dag er öllum verðandi ökumönnum skylt að sækja 24 tíma fræðilegt námskeið áður en þeir þreyta ökupróf. Ökuskólinn hefur aðsetur í Fjölbrautaskóla Suðurnesja og er rekinn með sérstöku starfsleyfi frá Umferðarráði. Forstöðumaður ökuskólans er Valdimar Þorgeirsson og aðrir samkennarar eru þeir Gunnar þór Jónsson og Jón F. Sigurðsson allir starfandi ökukennarar.