Velti fjórhjóli og fótbrotnaði
Erlend kona slasaðist um hvítasunnuhelgina þegar fjórhjól, sem hún ók eftir malarslóða við borholuna í Eldvörpum á Reykjanesi, valt. Konan var í hópi ferðafólks sem var með leiðsögumann.
Lögreglan á Suðurnesjum fór á staðinn og kom þá í ljós að konan virtist hafa misst vald á fjórhjólinu þegar hún var að aka niður aflíðandi brekku. Að sögn virtist hún hafa ekið of utanlega í vegabrún með þeim afleiðingum að hjólið valt og hún kastaðist af því.
Sjúkralið var kallað á vettvang og virtist allt benda til að konan hefði fótbrotnað við óhappið. Hún var flutt með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.