Velti fjórhjóli á toppi Hagafells og slasaðist
Kona sem slasaðist þegar hún velti fjórhjóli á toppi Hagafells er komin niður af fjallinu. Vel gekk að flytja konuna niður en sjúkrabíll beið hennar við rætur fjallsins.
Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík flutti lögreglu og sjúkraflutningamenn á slysstaðinn. Konan er ekki er talin alvarlega slösuð.
Myndina tók Otti Rafn Sigmarsson á slysstað.